30. maí 2007

æðislegur dagur!!

hæ, í dag var sko skemmtilegasti skóladagur í heimi !!,, Árgangnum var skipt í 2 hluta og minn hluti fór í hvalaskoðun... Við fórum á einhvern bát (skip) þar sem voru lík fullt af túristum.það kom sona niður úr skipinu og ég fór þar... það kom svona stór alda upp út af skrúfunni ;) svo stoppaði skipið og kawasaki skórnir mínir mínir fóru á flot (hvítir!!)en það var alltí lagi ferðin var bara að byrja og ég þornaði fljótt. Við sáum Hrefnu og Hnísu og höfrung (heyrðist mér) og sona 30 sinnum <3 :) svo sigldum við út í viðey og út á Snæfellsnes =D svo á leiðinni til baka vorum ég, Embla, Thelma og Sigrún birta með svo mikil læti að við máttum ekki vera inni þar sem flestir túristarnir voru :S. Svo eftir skóla/kl. 4 fór ég í afmæli hjá Sóley. Það var haldið í keiluhöllinni og það var gg stuð. Ef (það hefðu verið 2 skammarverðlaun hefði ég fengið :S Ég var næstlélegust (held ég) í einu kasti(lotu/2 köstum) skaut ég niður 2 keilur… Ömurlegt!! Bjarki vann hann er sko snillingur í keilu (ólíkt öðrum :( … )<3 En svo var pizza og kaka og þannig og svo klifruðum við í klettum og komumst upp í öskjuhlíð… Við þurftum líka að klifra niður gg bratta kletta og stökkva svona 1,5 metra!!Svo fórum við í gegnum ógeðslega dimm göng (pottþétt úr hernum) og komum út annarstaðar! :) Svo fór ég heim og slapp við fisk ;) <3 B)…)

17. maí 2007

var að gista hjá sóley

hæhæ
ísíðustu nótt gisti ég hljá Sóleyju og Kristín líka. Það var gg gaman og við vorum í þvílíku flippi. við horfðum á mynd, borðuþum pizzu og átum nammi. Svo vorum við úti á trampolíninu hjá Sóley og það var gg mikið stuð...

5. maí 2007

Landsbankahlaupið

Áðan var ég í Landsbankahlaupinu. Ég hljóp 1,5 km og var í 5. sæti af svona 70 stelpum ...!
Í gær var ekki körfuboltaæfing þannig að ég var bara eitthvað úti og fór svo heim og fékk pizzu í kvöldmatinn.
Eftir mat kom Bjarki og spurði eftir mér og við fórum út á spýturóló en Ingi beið þar. Við vorum lengi í bannað að snerta jörðu. Svo kom Óli, Ingi fór og Viktor í G-inu kom. Við fórum aðeins í bannað að snerta jörðu en fórum svo á grasið og vorum í eltingaleik þar. Svo fórum við í gamnislag... :S Kunni nú ekki mikið - en svo vorum við í sjómann og ég lærði trix svo það er varla hægt að vinna mann en svo fór ég heim um 11 leitið.

bara nokkrar myndir




Ég og Óli á fótboltaleik
ég...


1. sæti...!

Sumardaginn fyrsta var ég uppi í sveit. Þar var víðavangshlaup og ég var í fyrsta sæti af konunum...!!! ætla bara að setja mynd af,mér með bikarinn ;)