1. september 2007

mamma og pabbi i ameriu,,!

hæ hæ, mamma og pabbi eru semsagt í ameríku og koma heim 6. september.
í síðustu viku var Bebba bróðurdóttir pabba að passa okkur systkninin en nú erum við uppí sveit og verðum fram á mánudagskvöld en þá koma afi og amma á Akureyri að sjá um okkur, en ég sleppi þá skólanum á mánudaginn. ég er búin að ver veik og ekki enn búin að ná mér algjörlega, en fer nú að lagast. Skólinn er byrjaður á fullu og mikið að gera. Fimmtudagsköldið síðasta hittumst við stelpurnar hjá Sigrúnu og allir komu með kökur eða gos og snakk. við horfðum á mynd og fórum í leik sem heitir '' ég hef aldrei'' en hann er þannig að við vorum með rör á hvern mann og einn ógeðsdrykk, svo átti fyrsti að segja t.d. ég hef aldrey æft boltaíþrótt og þá áttu allir sem æfðu/höfðu æft boltaíþrótt að taka sopa. ég þurfti að taka tvo eða þrjá. svo fórum við út í brennó og síðan heim.
en hef ekkert meira að segja,,

25. júlí 2007

upp i sveit...

er upp í sveit núna og afi líka,, allir aðrir í borginni ;) soldið ömurlegt veður þanig að ég er bara að horfa á Simpsons og í tölvunni en hef í rauninni ekkert að segja :S er bara að hlusta á tónlist og láta mér leiðast,, en´i gær var ég á fullu að hjálpa pabba að undirbúa (jafna) svæði svo við gætum sett grasþökur í staðin fyrir allt illgresið ;) Eiki var sko á gröfu en hef ekkert meira að segja þanna...

16. júlí 2007

VINDÁSHLÍÐ!!<3

var í vindáshlíð ævintýraflokk og það var GEÐVEIKT!! það var gg ógeðslegur hermannaleikur,, maður hélt maður var að faraá skemmtilega kvöldvöku og allir voru komnir með kodda og teppi og þannig svo kom ógeðsleg kona inn og sagði okkur frá stríðslandi og hvernig fjölskyldu fóru í rúst,fólk týndist og þannig
og alltíeinu var bara bannkað á gluggana og það voru hermenninir þar og allir öskruðu og hlupu út og ég fór bara með einhverjum inní skóg og við fundum kall og ég þurti að gefa honum sokkana mína og spöng og þá gaf hann mér mynd af kirkjunni og við áttum að fara þangað og einmitt þá voru engir hermenn fyrir utan þarna svo ég komst inn;)<3 og var þá búin að ''vinna'' leikinn (ásamt öðrum)en 70% náðust og 10% voru bara í skóginum að fela sig þegar leikurinn var búinn,,
en það var skvett vatni yfir þá sem náðust og þeir þurftu að gera armbeygjur í ísköldum læ´knum og þannig,, svo var vatnsstríð, við áttum að fara út í skotbolta og svo komu foringjarnir altíeinu með vatnsslöngu og sprautuðu þvílíkt á okkur
en ég rennblotnaði!

svo var rugldagurinn þá var morgunmatur um kvölduð og kvöldkaffi um morguninn og bleikt skyr í ''kvöldmat'' (hádegismat á venjulegum degi)

og allir voru í brjóstahaldara utanum bolinn og nærbuxum utan um buxurnar,,:D

svo fórum við í lífsgönguna og áttum að fylgja reipi (höndum guðs) og það var set á mann eyrna band eða húfa fyrir augun og vip þurtum að bera gg þungan poka (syndirnar) og svo var hann tekinn því jesú dó á krossi,, og svo var sona freistari sem reyndi að ná manni frá reypinu með að t.d. segja ða maður var kominn á leiðarenda og sumir trúðu henni :S og þanna er ein að kalla fram verndarengilinn sem setur hana aftur á reypið;)svo var Idol og þetta eru dómararnir :S


og þessar voru Idol stjörnur með lífið er yndislegt
þessar unnu fyrir frumlegasta atriðið en lagið hét svitakrem en þær eru þvílíkt fyndna og voru með mér í herbergi

svo var ég í hópnum sem gekk uppá írafell en hinir geðgu að brúðarslæðu(foss)

svo var work-shop og hvert herbergi átti t.d. að hafa nudd og hárgreiðslu og maður gat farið á milli herbergja,,

10. júlí 2007

hæhæ

er í vinnunni hans pabba & var að hjálpa þar í dag (launað) svo á morgun fer ég í vindáshlíð og hlakka´GG til !<3

1. júlí 2007

leggjabrjótur í gær &einhver önnur leið í dag<3

í gær fór ég leggjabrjót. við fórum með vinnunni hennar mömmu/með VST.

Lagt af stað frá Botnsdal kl. 10:40, Hádegisstopp kl. 12:15 efst uppi á Sandhryggnum með útsýni niður í Brynjudal. Hluti hópsins tók smá útúrdúr rétt áður en komið var að Sandvatni niður að Skorhagafossi. Tókum stutta nestispásu stuttu eftir ármót Súluár og Öxarár. Komum í Hrútagil ca. kl. 16:15 þar sem var grillað. (Nonni ákvað fljótlega eftir seinni nestispásu að ganga með Krisjáni og Kristjáni og fóru þeir aðeins aðra leið (niður í Svartagil) og voru komnir í grillið ca. 17:15. Frábært veður alla leiðina, stuttbuxur allan daginn en í og úr peysunum. Leiðindafluga stærstan hluta leiðarinnar, en flugnanetin redduðu því.

svo í dag fórum við inn í Reykjadal (um 3 km ganga frá Rjúpna-brekkum í Hveragerði). Stutt ganga en falleg, útsýni stórbrotið, hverir og laugar eru á leiðinni. Við böðuðum okkur í notalega heitum læk. Æðislegt! Lögðum af stað í fínu veðri en svo kólnaði og við þurftum að nota ÖLL aukaföt sem við höfðum meðferðis. Alls 2,5 klst.

á morgun fer ég svo á klifurnámskeið(í klifurhúsinu)þar sem maður er ekki fastur í neina línu heldur l´tur sig bara gossa niður á 0,5 m þykka dýnu,,svo verður farið í öskjuhlíðina og klifrað þar<3 en ´ég hlakka gg til,,

en hénna í reykjavík er lítið að gera.. flestir uppteknir eða í útlöndum en ég bjarga mér.

27. júní 2007

Frakkland

Þegar voru 2 dagar eftir af skólanum fór ég til frakklands.<3 Það var æði! fyrstu 2 dagana var ég hjá hjónum sem afi þekkir & þau voru mjög indæl & áttu sætt hús en við vorum 12 saman í frakklandi (afi,amma, við fjölskyldan, lóla, einar, snæfríður, sindri & sólveig). svo keyrðum við í einhvern hafnarbæ sem var óskup sætur & ekki margir þar, en þa var fín þá vorum við oft bara ein á ströndinni & Við fórum í ''adrenalíngarð sem var geðveikur!!,,maður ar æa pöllum svona í 10 metraháum trjám & var í sigbelti með dæmi sem er notað í aprólu,,<:3 við sveifluðum okkur milli lína & þurtum að fara í allskyns þrautir eins& að labba yfir á spýtum sem sveifluðust & fara yfir +a snjóbretti eða sveifla sér í kaðli í net,,.en við fórum 2 í sona garða. svo fórum við í parís & á heitasta deginum ákvað mamma að við skyldum ganga um parís :( Það var ógeðslegaheitt!!,, það bjargaði okkur sammt að fara í fótabað hjá píramídunum fyrir utan safnið með mónu-lísu<3en seinna fórum við þangað inn,. Við fórum upp í effel-turninn og sáum sigurbogann og egyptasúlu eikkerja. en er í tölvunnu í vinnunni hans pabba og er að fara að borða þanna,,

en í gær gat ég ekki sofnað því ég var að lesa bók eftir mary higgins Clark en hún skifar spennubækur,,bókin sem ég las hét í feluleik um víðan völl.. en fjallar um stelpu sem er rænt 2 ára og er skilað eftir 2 ár enfólkið er alltaf að minna hana á að segja engum frá þeim t.d. þegar hún var hjá þeim gáfu þau henni kjúklinng en hjóu svo af honum hausinn og svo seinna settu þau dauðan kjúkling í stigan hjá henni eða hníf í töskuna hennar og hótuðu að ef hún segði mundi fara eins fyrir henni og kjúklingnum,,hún er 20 og eitthvað ára og er sökuð um morð á kennara sínum í skólanum.Því fingraför hennar eru alls staðar og á...hnífnum...systir hennar er lögfræðingur og reinir að vernda hana,, En þegar foreldrar þeirra dóu þá fékk stúlkan persónuleikatruflun sem er þannig að hún er eina stundina t.d 33 ára stelpa sem heitir Kate eða 4 ára stúlka sem heitir debbie. En engin persóna myrti kennaran. svo kemur í ljós að kona kennarans myrti hann,, en fólkið sem rænti stelpunni þóttist vera presthjón og einn daginn þegar þau föttuðu að ''stúlkan þeirra''eða Lee eins og þau kölluðu hana hafði sagt sálfræðingi sínum allt þá plötuðu þau hana til sín og klæddu sig alveg eins og þau voru þegar þau rændu henni og segja henni að því hún sagði þá verði hún að drepa sig. En systir hennar fattar þetta og bjargar henni á þá ætlar mannræninginn að drepa þær báðar en akkúrat þá kemur vinur systranna með byssu og er fyrri til...

30. maí 2007

æðislegur dagur!!

hæ, í dag var sko skemmtilegasti skóladagur í heimi !!,, Árgangnum var skipt í 2 hluta og minn hluti fór í hvalaskoðun... Við fórum á einhvern bát (skip) þar sem voru lík fullt af túristum.það kom sona niður úr skipinu og ég fór þar... það kom svona stór alda upp út af skrúfunni ;) svo stoppaði skipið og kawasaki skórnir mínir mínir fóru á flot (hvítir!!)en það var alltí lagi ferðin var bara að byrja og ég þornaði fljótt. Við sáum Hrefnu og Hnísu og höfrung (heyrðist mér) og sona 30 sinnum <3 :) svo sigldum við út í viðey og út á Snæfellsnes =D svo á leiðinni til baka vorum ég, Embla, Thelma og Sigrún birta með svo mikil læti að við máttum ekki vera inni þar sem flestir túristarnir voru :S. Svo eftir skóla/kl. 4 fór ég í afmæli hjá Sóley. Það var haldið í keiluhöllinni og það var gg stuð. Ef (það hefðu verið 2 skammarverðlaun hefði ég fengið :S Ég var næstlélegust (held ég) í einu kasti(lotu/2 köstum) skaut ég niður 2 keilur… Ömurlegt!! Bjarki vann hann er sko snillingur í keilu (ólíkt öðrum :( … )<3 En svo var pizza og kaka og þannig og svo klifruðum við í klettum og komumst upp í öskjuhlíð… Við þurftum líka að klifra niður gg bratta kletta og stökkva svona 1,5 metra!!Svo fórum við í gegnum ógeðslega dimm göng (pottþétt úr hernum) og komum út annarstaðar! :) Svo fór ég heim og slapp við fisk ;) <3 B)…)

17. maí 2007

var að gista hjá sóley

hæhæ
ísíðustu nótt gisti ég hljá Sóleyju og Kristín líka. Það var gg gaman og við vorum í þvílíku flippi. við horfðum á mynd, borðuþum pizzu og átum nammi. Svo vorum við úti á trampolíninu hjá Sóley og það var gg mikið stuð...

5. maí 2007

Landsbankahlaupið

Áðan var ég í Landsbankahlaupinu. Ég hljóp 1,5 km og var í 5. sæti af svona 70 stelpum ...!
Í gær var ekki körfuboltaæfing þannig að ég var bara eitthvað úti og fór svo heim og fékk pizzu í kvöldmatinn.
Eftir mat kom Bjarki og spurði eftir mér og við fórum út á spýturóló en Ingi beið þar. Við vorum lengi í bannað að snerta jörðu. Svo kom Óli, Ingi fór og Viktor í G-inu kom. Við fórum aðeins í bannað að snerta jörðu en fórum svo á grasið og vorum í eltingaleik þar. Svo fórum við í gamnislag... :S Kunni nú ekki mikið - en svo vorum við í sjómann og ég lærði trix svo það er varla hægt að vinna mann en svo fór ég heim um 11 leitið.

bara nokkrar myndir




Ég og Óli á fótboltaleik
ég...


1. sæti...!

Sumardaginn fyrsta var ég uppi í sveit. Þar var víðavangshlaup og ég var í fyrsta sæti af konunum...!!! ætla bara að setja mynd af,mér með bikarinn ;)

15. apríl 2007

Er að fara í fermingu ;)

Hæ! Í gær var ég í Njarðvík að horfa á Óla keppa í fótbolta en Signý var í tveggja daga ferð í Vindáshlíð.
Þegar Óli var búinn að keppa fórum við á pizzastað og fengum að borða og svo fórum við til Bebbu frænku og svo í sund.
Það var gaman í sundi en við gátum ekki verið lengi því að við þurftum svo að fara á leikinn

KR- Njarðvík. Það var gg spennandi leikur og KR VANNNnnnn...!!!
Njarðvík hefur ekki tapað sona 30 leikjum í röð á heimavelli !.!..!..!.!
En ég var að syngja allan leikinn með aðal stuðningsmönnunum og þótt Njarðvík væri á heimavelli þá heyrðist miklu meira í KR-ingum.
Í morgun þá fór ég að spila í KR-heimilinu á móti ÍR og við rústuðum.
Ég skoraði 12 stig (held ég) af eikkað 33 stigum á móti 9 (eða 7 eða eikkað þannig)
en svo gat ég ekki spilað fleiri leiki því ég var að fara í fermingu til Ísaks frænda míns.
Og er núna að fara að leggja af stað...

4. apríl 2007

komin til Akureyrar!

HÆHÆ Þá er ég komin til Akureyrar ;) Það var gaman í Páskakörfuboltaskólanum og ég lærði mikið. 1 daginn var ég að æfa með signýju og Salvöru og strákunum í þeirra flokk... en 2 daginn komu nokkrir 11 ára strákar og við æfðum með þeim(og líka strákarnir). svo fór ég til Akureyrar og var að vakna...

1. apríl 2007

Ævintýraferð á Pálmasunnudegi

Er komin úr ferðinni. Þetta var þvílík svaðilför og mjög skemmtileg. Fyrst ætluðum við einhvern veg upp á Þingvelli(Nesjavallaaveg) en þar festumst við í snjó og það kom bíll sem dró okkur en nálægt var þröngt gil þar sem var gg erfitt að komast alla leið upp!!! Eftir að bíllinn var búinn að draga okkur út úr skaflinum þá snérum við við og fórum aðra leið.

Svo gengum við upp Ármannsfell og það var svosem ágætt á leið upp en niður renndum við okkur niður þessar þvílíku snjóbreiður og það bjargaði sko alveg deginum.
Svo fórum við í ísbúð en föttuðum svo að þetta var líka svaka flottur veitingastaður og þar fengum við okkur svaka góðan mat.

Svo fórum við í Árbæjarlaug en gátum bara verið í hálftíma því það var verið að loka lauginni.

hæhæ

Á miðvikudaginn fóru 6. og 7. bekkur í skíðaferðalag. Það var gg gaman og ég var á brettinu mínu og var að renna mér í kóngsgilinu og þar í bláfjöllum. Svo kl. svona hálf-fjögur fórum við heim. Ég var alveg að sofna og fékk að sleppa tónfræði...!

Ótrúlega flott mynd af mér að renna mér á snjóbretti í Ölpunum

Á fimmtudaginn fór ég svo aftur í Bláfjöll en með fjölskyldunni (reyndar komst Pabbi ekki). Þar rendum víð okkur í 5 tíma. Og það var gg gaman og ég lærði svona afturábak svig.

Svo á föstudaginn var svona skotkeppni úti í KR og þar voru nokkrir flokkar(allir yngri) og kepptu í t.d vítakeppni og stinger. Öllum var skipt á 4 körfur og fóru í vítahring og fengu 5 skot. ég skoraði í 4 af 5. þá komst ég í úrslit og líka:Jökull(í MB. kk) Bergþór (í Signýjar flokk) Sólbjörg (í mínum flokk) Salvör(held ég)(í Signyjar flokk) og svo einhverjir yngri sem ég veit ekki hvað heita.OG ÉG VANN!!! og fékk fullt af KR dóti í verðlaun.

Svo á laugardaginn fór ég í fermingu hjá Sif sem er vinkona mín úr Seilugrandanum. Það var mjög gaman í fermingunni og mjög góður matur.

Svo í dag veit ég ekki hvað ég ætla að gera. fer líklega í gönguferð eða eitthvað...

22. mars 2007

Hæ allir..!

hæmms...
Það var frí í skólanum í dag og verður á morgun. Verst að ég get ekki sofið fram eftir á morgun útaf píanótímanum :( en fer bráðum að taka píanópróf...!!!
Var á badmintonæfingu áðan og það var mjög gaman en er samt orðin nokkuð pirruð á "baunaspírunni" (við Kristín vitum ekki hað hann heitir þannig að greyið fékk þetta viðurnefni) :S ;) :S
Er alltaf að taka út fleiri og fleiri "How to Draw Manga" bækur því mér finnst gg gaman að teikna Manga eða reyndar bara almennt að teikna ;)

11. mars 2007

hæ...!


hæhæ.
Var áðan að koma af Samkaupsmótinu og það var gg gaman.
Katrín var stuðbolti dagsins og allir voru í klikkuðu stuði ;)
Það var gist og það var gaman en reyndar svolítið erfitt að sofna því að sólbjörg var alltaf að mjaka sér til á vindsænginni og svo voru alltaf allir að hósta og þannig. En samt held ég að ég hafi sofnað fyrst.
Svo var náttúrulega kvöldvaka og skúffukaka en því miður var skúffukakan ekkert neitt æði... :S
en samt ágætt ;)
Liðinu okkar var skipt í 2 lið og ég var í KR 14 :) við kepptum á móti :
Grindavík(þau unnu)
Breiðablik(við unnum) Njarðvík(við unnum) og ég skoraði svakalega mikið :)
Haukar(við unnum og að lokum
tindastóll (við unnum)
Ég held að ég hafi skorað mest í flestum leikjunum ;) :) :D

Meira um íþróttir:
fyrir stuttu var svona ''skólahreysti'' í íþróttum og ég vann af stelpunum...!!! ég var með tíman 1,58 mín :) þetta var svona þrautabraut ;) Kristinn vann af strákunum.
en oki...bæææ...

22. febrúar 2007

hæhæ

hæ hæ ég var á badmintonæfingu áðan og það var gg gaman og ég var í þvílíku hláturskasti ;)
en í skólanum í dag var matreiðsla fyrir okkur stelpurnar og við bökuðum súkkulaðiköku. :D en því miður var Norræna skólahlaupið beint eftir matreiðslu en en ég gat ekki hlaupið því það var næstum liðið yfir mig ... :S en allavega þá þarf ég að fara að æfi mig á píanóið.


bæbæ

P.S. 1 frábær sigur hjá KR körfu kk núna áðan...!!! :D

P.S.2 í dag vorum ég Aníta og Róbert að baka, en svo kom Krístín og Aníta fór á fimleikaæfingu og við kláruðum að baka.

P.S.3 Svo fórum í út og líka Bjarki og Oliver ;) og það var gg gaman eða almennt bara allur dagurinn fyrir utan þetta skólahlaup :(

12. febrúar 2007

skólasund á eftir

hæhæ er að fara í skólasund á eftir og ég vona að það verði bara gaman ;) Ég er nokkuð óheppin því að í gær var ég í sundi með Emblu í seltjarnarnesslaug og gleymdi sundtöskunni í ísbúðinni :(
en fer á æfingu með eldri stelpunum í dag en annnars á ég frí...!!!Jibbí... Um helgina var ég á Reykjavíkurmóti og við unnum ÍR en töpuðum fyrir Fjölni (Söru stóru) svo á sunnudaginn var ég að leika við Emblu allan daginn. Við vorum úti, að teikna, baka lummur og náttúrulega fórum við í sund ;)
bæbæ

8. febrúar 2007

hæ...


hæhæ var að breyta útlitinu á síðunni ;) úr græna stílnum yfir í þann bláa.
Í dag í dansi í skólanum vorum við að læra jive (djæv)og við stelpurnar erum með nokkuð flókið C/:-) og strákasporið líka :-)8
en það var allavega ágætt í skólanum;)

Í frímó var ég í ''rúbbí'' (rugby) en það var þannig að R og S voru á móti G og áttu að reyna að ná boltanum af G-inu og öfugt;) Það var gg gaman og ég náði þrisvar boltanum :oD
á eftir fer ég á badmintonæfingu.
en bæó

3. febrúar 2007

gg lag;)

hæhæ hérna er sko frábært lag með nýja tónsnillingnum Mika og þetta lag er núna í uppáhaldi hjá mér;)

I could be brown
I could be blue
I could be violet sky
I could be hurtful
I could be purple
I could be anything you like
Gotta be green
Gotta be mean
Gotta be everything more
Why dont you like me?
Why dont you like me?
Why dont you walk out the door!

en hérna er lagið

28. janúar 2007

kea-skyr mótið



hæhæ allir...!!!




Var á körfuboltamóti í gær og það var gg gaman.

Við rústuðum tindastól og það munaði
ekki miklu að við hefðum unnið breiðablik

Svo fórum við fjölskyldan á veitingastað og það var mjög gaman.
Núna er signý á móti.

OK bæóó.....!



13. janúar 2007

hii...!

hæhæ
Kristín og Sóley voru að gista hjá mér og það var gg gaman ;D við horfðum á click sem er bæði sorgleg og fyndin mynd :0)

Morgunin eftir var körfuboltaæfing klukkan10!!!!!gg fút að sofna hálf3 og vakna 9 :( :( En æfingin var samt fín ;)

bæbbs

3. janúar 2007

Gleðilegt ár!!


Hæ hæ!
Þetta er nýja síðan mín:) Það gekk svolítið erfiðlega að ná að blogga en mömmu tókst að redda því (eins og flestu öðru sem hún gerir)
Um áramótin var ég á Akureyri;) Það var ótrúlega gaman og það var mikið sprengt. Áramótamaturinn var æði( að frönskum sið) og maturinn kláraðist algjörlega en enginn varð svangur.
Um jólin fékk ég fullt af pökkum og þá var líka æðislegur matur!:o)

Núna er Ronja á fullu að leika sér með boltann sinn, og lítur við og við á mig og gáir hvort ég sé að fylgjast með henni því ef enginn er að horfa getur hún endurskreytt jólatréið í friði :S

Borða áramótamatinn


Um áramótin


Mynd