leggjabrjótur í gær &einhver önnur leið í dag<3
í gær fór ég leggjabrjót. við fórum með vinnunni hennar mömmu/með VST.
Lagt af stað frá Botnsdal kl. 10:40, Hádegisstopp kl. 12:15 efst uppi á Sandhryggnum með útsýni niður í Brynjudal. Hluti hópsins tók smá útúrdúr rétt áður en komið var að Sandvatni niður að Skorhagafossi. Tókum stutta nestispásu stuttu eftir ármót Súluár og Öxarár. Komum í Hrútagil ca. kl. 16:15 þar sem var grillað. (Nonni ákvað fljótlega eftir seinni nestispásu að ganga með Krisjáni og Kristjáni og fóru þeir aðeins aðra leið (niður í Svartagil) og voru komnir í grillið ca. 17:15. Frábært veður alla leiðina, stuttbuxur allan daginn en í og úr peysunum. Leiðindafluga stærstan hluta leiðarinnar, en flugnanetin redduðu því.
svo í dag fórum við inn í Reykjadal (um 3 km ganga frá Rjúpna-brekkum í Hveragerði). Stutt ganga en falleg, útsýni stórbrotið, hverir og laugar eru á leiðinni. Við böðuðum okkur í notalega heitum læk.
Æðislegt! Lögðum af stað í fínu veðri en svo kólnaði og við þurftum að nota ÖLL aukaföt sem við höfðum meðferðis. Alls 2,5 klst.
á morgun fer ég svo á klifurnámskeið(í klifurhúsinu)þar sem maður er ekki fastur í neina línu heldur l´tur sig bara gossa niður á 0,5 m þykka dýnu,,svo verður farið í öskjuhlíðina og klifrað þar<3 en ´ég hlakka gg til,,
en hénna í reykjavík er lítið að gera.. flestir uppteknir eða í útlöndum en ég bjarga mér.
2 ummæli:
Hæhæ !!
það verður örugglega gg skemmtilegt í klifrinu ;)
en þú veist að ég er ekki í útlöndum <3
hey þórdís ég sá þig þarna rétt hjá hveragerði! ég var liggjandi í grasinu en þið voruð að leggja af stað og ég var eiginlega sofandi hahaha... svo að ég náði ekki að segja hæ við þig.
en hlakka til að sjá þið næsta haust í körfunni!
Skrifa ummæli