Er að fara í fermingu ;)
Hæ! Í gær var ég í Njarðvík að horfa á Óla keppa í fótbolta en Signý var í tveggja daga ferð í Vindáshlíð.
Þegar Óli var búinn að keppa fórum við á pizzastað og fengum að borða og svo fórum við til Bebbu frænku og svo í sund.
Það var gaman í sundi en við gátum ekki verið lengi því að við þurftum svo að fara á leikinn
KR- Njarðvík. Það var gg spennandi leikur og KR VANNNnnnn...!!!
Njarðvík hefur ekki tapað sona 30 leikjum í röð á heimavelli !.!..!..!.!
En ég var að syngja allan leikinn með aðal stuðningsmönnunum og þótt Njarðvík væri á heimavelli þá heyrðist miklu meira í KR-ingum.
Í morgun þá fór ég að spila í KR-heimilinu á móti ÍR og við rústuðum.
Ég skoraði 12 stig (held ég) af eikkað 33 stigum á móti 9 (eða 7 eða eikkað þannig)
en svo gat ég ekki spilað fleiri leiki því ég var að fara í fermingu til Ísaks frænda míns.
Og er núna að fara að leggja af stað...
Svo fórum við í ísbúð en föttuðum svo að þetta var líka svaka flottur veitingastaður og þar fengum við okkur svaka góðan mat.