Ævintýraferð á Pálmasunnudegi
Er komin úr ferðinni. Þetta var þvílík svaðilför og mjög skemmtileg. Fyrst ætluðum við einhvern veg upp á Þingvelli(Nesjavallaaveg) en þar festumst við í snjó og það kom bíll sem dró okkur en nálægt var þröngt gil þar sem var gg erfitt að komast alla leið upp!!! Eftir að bíllinn var búinn að draga okkur út úr skaflinum þá snérum við við og fórum aðra leið.
Svo gengum við upp Ármannsfell og það var svosem ágætt á leið upp en niður renndum við okkur niður þessar þvílíku snjóbreiður og það bjargaði sko alveg deginum.
Svo fórum við í ísbúð en föttuðum svo að þetta var líka svaka flottur veitingastaður og þar fengum við okkur svaka góðan mat.
Svo fórum við í Árbæjarlaug en gátum bara verið í hálftíma því það var verið að loka lauginni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli