15. apríl 2007

Er að fara í fermingu ;)

Hæ! Í gær var ég í Njarðvík að horfa á Óla keppa í fótbolta en Signý var í tveggja daga ferð í Vindáshlíð.
Þegar Óli var búinn að keppa fórum við á pizzastað og fengum að borða og svo fórum við til Bebbu frænku og svo í sund.
Það var gaman í sundi en við gátum ekki verið lengi því að við þurftum svo að fara á leikinn

KR- Njarðvík. Það var gg spennandi leikur og KR VANNNnnnn...!!!
Njarðvík hefur ekki tapað sona 30 leikjum í röð á heimavelli !.!..!..!.!
En ég var að syngja allan leikinn með aðal stuðningsmönnunum og þótt Njarðvík væri á heimavelli þá heyrðist miklu meira í KR-ingum.
Í morgun þá fór ég að spila í KR-heimilinu á móti ÍR og við rústuðum.
Ég skoraði 12 stig (held ég) af eikkað 33 stigum á móti 9 (eða 7 eða eikkað þannig)
en svo gat ég ekki spilað fleiri leiki því ég var að fara í fermingu til Ísaks frænda míns.
Og er núna að fara að leggja af stað...

4. apríl 2007

komin til Akureyrar!

HÆHÆ Þá er ég komin til Akureyrar ;) Það var gaman í Páskakörfuboltaskólanum og ég lærði mikið. 1 daginn var ég að æfa með signýju og Salvöru og strákunum í þeirra flokk... en 2 daginn komu nokkrir 11 ára strákar og við æfðum með þeim(og líka strákarnir). svo fór ég til Akureyrar og var að vakna...

1. apríl 2007

Ævintýraferð á Pálmasunnudegi

Er komin úr ferðinni. Þetta var þvílík svaðilför og mjög skemmtileg. Fyrst ætluðum við einhvern veg upp á Þingvelli(Nesjavallaaveg) en þar festumst við í snjó og það kom bíll sem dró okkur en nálægt var þröngt gil þar sem var gg erfitt að komast alla leið upp!!! Eftir að bíllinn var búinn að draga okkur út úr skaflinum þá snérum við við og fórum aðra leið.

Svo gengum við upp Ármannsfell og það var svosem ágætt á leið upp en niður renndum við okkur niður þessar þvílíku snjóbreiður og það bjargaði sko alveg deginum.
Svo fórum við í ísbúð en föttuðum svo að þetta var líka svaka flottur veitingastaður og þar fengum við okkur svaka góðan mat.

Svo fórum við í Árbæjarlaug en gátum bara verið í hálftíma því það var verið að loka lauginni.

hæhæ

Á miðvikudaginn fóru 6. og 7. bekkur í skíðaferðalag. Það var gg gaman og ég var á brettinu mínu og var að renna mér í kóngsgilinu og þar í bláfjöllum. Svo kl. svona hálf-fjögur fórum við heim. Ég var alveg að sofna og fékk að sleppa tónfræði...!

Ótrúlega flott mynd af mér að renna mér á snjóbretti í Ölpunum

Á fimmtudaginn fór ég svo aftur í Bláfjöll en með fjölskyldunni (reyndar komst Pabbi ekki). Þar rendum víð okkur í 5 tíma. Og það var gg gaman og ég lærði svona afturábak svig.

Svo á föstudaginn var svona skotkeppni úti í KR og þar voru nokkrir flokkar(allir yngri) og kepptu í t.d vítakeppni og stinger. Öllum var skipt á 4 körfur og fóru í vítahring og fengu 5 skot. ég skoraði í 4 af 5. þá komst ég í úrslit og líka:Jökull(í MB. kk) Bergþór (í Signýjar flokk) Sólbjörg (í mínum flokk) Salvör(held ég)(í Signyjar flokk) og svo einhverjir yngri sem ég veit ekki hvað heita.OG ÉG VANN!!! og fékk fullt af KR dóti í verðlaun.

Svo á laugardaginn fór ég í fermingu hjá Sif sem er vinkona mín úr Seilugrandanum. Það var mjög gaman í fermingunni og mjög góður matur.

Svo í dag veit ég ekki hvað ég ætla að gera. fer líklega í gönguferð eða eitthvað...

22. mars 2007

Hæ allir..!

hæmms...
Það var frí í skólanum í dag og verður á morgun. Verst að ég get ekki sofið fram eftir á morgun útaf píanótímanum :( en fer bráðum að taka píanópróf...!!!
Var á badmintonæfingu áðan og það var mjög gaman en er samt orðin nokkuð pirruð á "baunaspírunni" (við Kristín vitum ekki hað hann heitir þannig að greyið fékk þetta viðurnefni) :S ;) :S
Er alltaf að taka út fleiri og fleiri "How to Draw Manga" bækur því mér finnst gg gaman að teikna Manga eða reyndar bara almennt að teikna ;)

11. mars 2007

hæ...!


hæhæ.
Var áðan að koma af Samkaupsmótinu og það var gg gaman.
Katrín var stuðbolti dagsins og allir voru í klikkuðu stuði ;)
Það var gist og það var gaman en reyndar svolítið erfitt að sofna því að sólbjörg var alltaf að mjaka sér til á vindsænginni og svo voru alltaf allir að hósta og þannig. En samt held ég að ég hafi sofnað fyrst.
Svo var náttúrulega kvöldvaka og skúffukaka en því miður var skúffukakan ekkert neitt æði... :S
en samt ágætt ;)
Liðinu okkar var skipt í 2 lið og ég var í KR 14 :) við kepptum á móti :
Grindavík(þau unnu)
Breiðablik(við unnum) Njarðvík(við unnum) og ég skoraði svakalega mikið :)
Haukar(við unnum og að lokum
tindastóll (við unnum)
Ég held að ég hafi skorað mest í flestum leikjunum ;) :) :D

Meira um íþróttir:
fyrir stuttu var svona ''skólahreysti'' í íþróttum og ég vann af stelpunum...!!! ég var með tíman 1,58 mín :) þetta var svona þrautabraut ;) Kristinn vann af strákunum.
en oki...bæææ...

22. febrúar 2007

hæhæ

hæ hæ ég var á badmintonæfingu áðan og það var gg gaman og ég var í þvílíku hláturskasti ;)
en í skólanum í dag var matreiðsla fyrir okkur stelpurnar og við bökuðum súkkulaðiköku. :D en því miður var Norræna skólahlaupið beint eftir matreiðslu en en ég gat ekki hlaupið því það var næstum liðið yfir mig ... :S en allavega þá þarf ég að fara að æfi mig á píanóið.


bæbæ

P.S. 1 frábær sigur hjá KR körfu kk núna áðan...!!! :D

P.S.2 í dag vorum ég Aníta og Róbert að baka, en svo kom Krístín og Aníta fór á fimleikaæfingu og við kláruðum að baka.

P.S.3 Svo fórum í út og líka Bjarki og Oliver ;) og það var gg gaman eða almennt bara allur dagurinn fyrir utan þetta skólahlaup :(

12. febrúar 2007

skólasund á eftir

hæhæ er að fara í skólasund á eftir og ég vona að það verði bara gaman ;) Ég er nokkuð óheppin því að í gær var ég í sundi með Emblu í seltjarnarnesslaug og gleymdi sundtöskunni í ísbúðinni :(
en fer á æfingu með eldri stelpunum í dag en annnars á ég frí...!!!Jibbí... Um helgina var ég á Reykjavíkurmóti og við unnum ÍR en töpuðum fyrir Fjölni (Söru stóru) svo á sunnudaginn var ég að leika við Emblu allan daginn. Við vorum úti, að teikna, baka lummur og náttúrulega fórum við í sund ;)
bæbæ

8. febrúar 2007

hæ...


hæhæ var að breyta útlitinu á síðunni ;) úr græna stílnum yfir í þann bláa.
Í dag í dansi í skólanum vorum við að læra jive (djæv)og við stelpurnar erum með nokkuð flókið C/:-) og strákasporið líka :-)8
en það var allavega ágætt í skólanum;)

Í frímó var ég í ''rúbbí'' (rugby) en það var þannig að R og S voru á móti G og áttu að reyna að ná boltanum af G-inu og öfugt;) Það var gg gaman og ég náði þrisvar boltanum :oD
á eftir fer ég á badmintonæfingu.
en bæó

3. febrúar 2007

gg lag;)

hæhæ hérna er sko frábært lag með nýja tónsnillingnum Mika og þetta lag er núna í uppáhaldi hjá mér;)

I could be brown
I could be blue
I could be violet sky
I could be hurtful
I could be purple
I could be anything you like
Gotta be green
Gotta be mean
Gotta be everything more
Why dont you like me?
Why dont you like me?
Why dont you walk out the door!

en hérna er lagið

28. janúar 2007

kea-skyr mótið



hæhæ allir...!!!




Var á körfuboltamóti í gær og það var gg gaman.

Við rústuðum tindastól og það munaði
ekki miklu að við hefðum unnið breiðablik

Svo fórum við fjölskyldan á veitingastað og það var mjög gaman.
Núna er signý á móti.

OK bæóó.....!



13. janúar 2007

hii...!

hæhæ
Kristín og Sóley voru að gista hjá mér og það var gg gaman ;D við horfðum á click sem er bæði sorgleg og fyndin mynd :0)

Morgunin eftir var körfuboltaæfing klukkan10!!!!!gg fút að sofna hálf3 og vakna 9 :( :( En æfingin var samt fín ;)

bæbbs

3. janúar 2007

Gleðilegt ár!!


Hæ hæ!
Þetta er nýja síðan mín:) Það gekk svolítið erfiðlega að ná að blogga en mömmu tókst að redda því (eins og flestu öðru sem hún gerir)
Um áramótin var ég á Akureyri;) Það var ótrúlega gaman og það var mikið sprengt. Áramótamaturinn var æði( að frönskum sið) og maturinn kláraðist algjörlega en enginn varð svangur.
Um jólin fékk ég fullt af pökkum og þá var líka æðislegur matur!:o)

Núna er Ronja á fullu að leika sér með boltann sinn, og lítur við og við á mig og gáir hvort ég sé að fylgjast með henni því ef enginn er að horfa getur hún endurskreytt jólatréið í friði :S

Borða áramótamatinn


Um áramótin


Mynd